Hreinsiefnin frá DuPont eru sérstaklega framleidd með smitvarnir í huga. Virkon S er afrakstur margra ára rannsókna og þróunarstarfs Antec International. Fullyrða má, að Virkon S er mest rannsakaða sótthreinsiefnið á markaðnum og hefur það m.a. verið prófað af breska landbúnaðarráðuneytinu (MAFF) og er viðurkennt til notkunar gegn gin- og klaufaveikiveirunni. Virkon hefur verið prófað gegn H1N1 svínaflensuveirunni af þriðja aðila og útrýmdi veirunni þegar í stað. Virkon S er skaðlaust mönnum og dýrum í 1% upplausn. Prófanir ESB sýna að Virkon S í 1 % lausn er ekki ertandi. Það er þó ertandi óuppleyst.
Alhliða sótthreinsiefni með víðtæka virkni og fjölbreytt notkunarsvið.
Notkun: Til hreinsunar og sótthreinsunar í hesthúsum og öðrum gripahúsum, áhöld og reiðtygi, í fiskeldi og matvælaframleiðsu, hunda- og kattarækt ásamt fleiri stöðum.
Blöndunarhlutföll: 1%
Ein svona tafla blandast í 0,5l af vatni og smellpassar því í úðabrúsana sem við seljum einnig. Blandan er stöðug og endist að lágmarki í 5 daga eða þangað til hún hættir að vera bleik.